HTML/Leturgerð
Til að breyta uppsetningu texta eru notuð ýmis mörk.
Til þess að feitletra texta notum við B-markið.
<b>
Feitletrað
</b>
Til þess að skrifa með skáletri notum við I-markið.
<i>
Skáletrað
</i>
Oft viljum við skipta um leturgerð á textanum og þá notum við Font-markið.
<font face="arial">
Arial
</font>
Eins og þú sérð, hefur Font-markið Face-eiginleikann. Flest mörk hafa ýmsa eiginleika sem gefa til kynna frekari uppsetningu. Ef við viljum t.d skipta um lit á textanum notum við color-eiginleikann.
Ath. Font-markið er ekki lengur staðall sem þýðir að það ætti að nota sem minnst. Í stað þess á nú að nota Style-eigindið með nokkurn veginn hvaða merki sem er.
Ef við viljum fara eftir nýja staðlinum þá notum við Style-eigindið.
<span style="text-color: red">rautt</span>
Nánar er farið í Style-eigindið í CSS kaflanum. Þar er líka sýnt hvernig hægt er að nota CSS.