Áttundakerfið
Áttundakerfið
[breyta]Áttundakerfið er talnakerfi með gunntöluna 8. Tölustafirnir sem áttundakerfið á eru því 0, 1, 2, 3, 4, 5, 6 og 7.
Notkun
[breyta]Áttundakerfið er nátengt tvíundakerfinu og þar að leiðandi einnig tengt sextándakerfinu. Mest áberandi notkun áttundakerfisins í tölvum er líklega í réttindastillingum skráa og mappa í unix skyldum stýrikerfum.
Áttundakerfið - Tvíundakerfið
[breyta]Það sem gerir áttundakerfið eftirsóknarvert til notkunar í tölvum er að mjög auðvelt er að breyta tölum úr tvíundakerfinu í áttundakerfið og svo öfugt. Það sem gerir breytingarnar svona auðveldar er sú staðreynd að talan átta er margfeldi af tveimur.
Þess vegna má skrifa hverja áttundakerfis tölu sem þrjár tvíundakerfis tölur. Nota má töfluna hér fyrir neðan til að breyta á milli kerfanna.
Áttunda | Tvíunda |
0 | 000 |
1 | 001 |
2 | 010 |
3 | 011 |
4 | 100 |
5 | 101 |
6 | 110 |
7 | 111 |
Úr töflunni má þá lesa að t.d. 123 í áttundakerfinu er 001010011 í tvíundakerfinu og að 111001010 í tvíundakerfinu er 712 í áttundakerfinu.
Æfingar 1
[breyta]
Æfingar 2
[breyta]