Matreiðslubók/Rúllubrauð með fyllingu
Útlit
Rúllubrauð með fyllingu er einfalt að baka og hægt að nota nokkurnvegin hvaða fyllingu sem er. Meðal annars má gera úr því ólífubrauð og hvítlauksbrauð.
Brauð
[breyta]Innihald
[breyta]- 3 tsk. þurrger
- 3 dl. volgt vatn
- 1/4 dl. olía
- 1 tsk. salt
- u.þ.b. 3 1/2 bolli hveiti
Aðferð
[breyta]- Þurrgeri blandað saman við vatn og olíu.
- Salti bætt við.
- Hveiti sett út í og hrært vel saman við á meðan.
- Látið lyftast á heitum stað, svo sem vaski fullum af heitu vatni.
- Þegar það er búið að lyftast er það hnoðað og flatt út í ílangann rétthyrning.
Fylling
[breyta]Fyllingin getur, eins og áður sagði, verið margskonar, hér eru tvö dæmi:
Ólífubrauð
[breyta]- 2 dl. ostur
- 15 ólífur
Brauð með sólþurrkuðum tómötum
[breyta]- 2 dl. ostur
- 10 sólþurrkaðir tómatar
- 8 ólífur
- Hvítlaukssalt
- Basilíka
Aðferð
[breyta]- Því sem á að vera í fyllingu dreift jafnt yfir útflatt brauðið.
- Öllu saman rúllað upp.
- Látið lyftast á heitum stað aftur (eða látið í kaldan ofn meðan ofninn er að hitast).
- Látið bakast í miðjum ofni við 180°C í um það bil 30 mínútur.