Vefrallý/Lstavefur fyrir krakka
Útlit
< Vefrallý
- Vefrallý á listavef fyrir krakka http://www.nams.is/isllistvefur/index.htm er ætlað nemendum í 3 - 6 bekk. Verkefnið er hægt að vinna í einn og sér eða tveir saman.
- Hverjir eru frumlitirnir?
- Hvað eru andstæðir litir?
- Hvaða litir eru heitir og hverjir eru kaldir?
- Hvað einkennir myndir sem hafa mikla fjarlægð?
- Hvaða lit færðu út ef þú blandar saman frumlitunum saman t.d. gulum og rauðum?
- Hver eru grunnformin?
- Hvað er átt við með myndbyggingu?
- Hvað þarf að hafa í huga til þess að geta notið listaverks?
- Finndu a.m.k. fimm listamenn?
- Finndu listaverkið "þar rauður loginn brann" og segðu frá því hvort það séu fleiri heitir litir eða kaldir litir í verkinu.
- Nefndu a.m.k. fimm aðferðir til að búa til listaverk.
- Hvað er átt við þegar talað er um áferð hluta?
- Finndu fimm spurningar sem hægt er að spyrja þegar það er verið að meta listaverk.
- Finndu listamanninn Gerorg Guðna og segðu frá því hvernig listamaður hann er.
- Farðu inn á linkinn formfræði og þaðan inn á náttúruleg form og leystu þrautina þar.
- Hvert sækja íslenskir málarar myndefni sín?
Þetta er glæsilegur vefur fyrir börn sem hafa áhuga á list :)
Höfundur: Hanna Skúladóttir