Upplýsingatækni/Að nota Discovery puzzlemaker
Discovery Puzzle Maker
[breyta]Discovery Puzzle Maker er frítt vefforrit sem leyfir notanda að búa til gátur, krossgátur og orðaleitir sér að kostnaðarlausu. Forritið er mjög einfalt í notkun og ekki þarf að hlaða neinu niður.Leiðbeiningar eru mjög skýrar eftir að tegund gátu hefur verið valin.
Discovery Puzzle Maker til kennslu
[breyta]Gátugerðarforritið gæti hentað mjög vel til ýmissar kennslu. Sem dæmi um notkun gæti Word Search hentað sem stuðningur við orðaforða eða jafnvel stafsetningu, Criss-Cross til að finna samheiti í bæði erlendum tungumálum sem og í íslensku. Einnig gæti Math Squares hentað vel sem stuðningur við stærðfræði kennslu. Auk þess áðurnefnda er hægt að gera völundarhús, falin orðatiltæki eða málshætti svo eitthvað sé nefnt.
Leiðbeiningar
[breyta]1.Farið inn á síðuna með forritinu [1]
2. Veljið tegund gátu
- Word Search
- Criss-Cross
- Double Puzzles
- Fallen Phrases
- Math Squares
- Mazes
- Letter Tiles
- Cryptograms
- Number Blocks
- Hidden Message
3. Fylgið leiðbeiningunum sem koma skref fyrir skref