Fara í innihald

Sjósund

Úr Wikibókunum
Flickr - Official U.S. Navy Imagery - USS Bataan Sailors and Marines dive off the stern gate in the well deck during a swim call

Um sjósund

[breyta]

Þessi wikibók fjallar um sjósund og er efni hennar ætlað byrjendum jafnt sem lengra komnum. Markmiðið er að fólk sem hefur áhuga á sjósundi geti leitað sér nauðsynlegra upplýsinga á einum stað. Fjallað verður sérstaklega um sjósundaðstöðuna í Nauthólsvík, ráðleggingar um það sem er gott að hafa í huga fyrir sund, á sundi og eftir sund. Einnig er kafli um vinsæla sjósundstaði umhverfis Ísland. Að lokum má finna nokkrar auðveldar spurningar sem gætu komið að góðum notum og tengil í sjósundaðstöðuna í Nauthólsvík sem birtir hitastig og áætlaðan sjávarhita í rauntíma.

Að mörgu er að huga áður en fólk stingur sér til sunds.[1]

Geothermal Beach at Nauthólsvík (3554476791)

Fyrir sund

[breyta]
  • Syntu ekki ein(n).
  • Kynntu þér aðstæður, t.d. Strandlengjuna, sjólag, sjávarhita, sjávarföll, vindstyrk og vindátt áður en þú ferð í sjóinn.
  • Vertu búin(n) að borða áður en þú ferð í sjóinn.
  • Notaðu sundhettu/húfu í áberandi lit.
  • Farðu rólega ofan í sjóinn og gefðu líkamanum tíma til að venjast kuldanum.
  • Ekki byrja að synda fyrr en þú andar eðlilega.
  • Syntu helst í dagsbirtu svo þú sért sýnilegir.
  • Ef um kvöldsund er að ræða er mikilvægt að vera nálægt landi því erfitt er að greina sundmenn sem komnir eru frá landi.

Á sundi

[breyta]
  • Syntu ekki ein(n).
  • Hugsaðu um eigið öryggi.
  • Vertu nálægt landi.
  • Syntu meðfram ströndinni af öryggisástæðum, straumar geta verið viðsjárverðir.
  • Andaðu rólega.
  • Fylgist hvert með öðru.
  • Talist reglulega við til að fylgjast með líðan og meðvitund.
  • Aldrei synda undir ís.
  • Óvanir ættu að vera skamma stund í sjónum í fyrstu skipti og vera aðeins með vönu sjósundfólki.
  • Hætta á ofkælingu og örmögnun er mikil.  
  • Ekki taka áhættu – þú þarft að komast til baka á eigin spýtur.
  • Hlustaðu á skilaboð líkamans.
  • Við ofkælingu leitið til starfsmanna Ylstrandar eða hringið í Neyðarlínu 112.

Eftir sund

[breyta]
  • Þurrkaðu þér vel áður en þú klæðir þig í fötin
  • Drekktu vatn.
  • Borðaðu eitthvað næringarríkt.
  • Klæddu þig í hlý föt áður en þú ferð heim.
  • Köld húð er auðsærð og þess vegna er rétt að gæta varúðar þegar komið er úr sjónum.

Skemmtilegir sjósundstaðir

[breyta]

Ylströndin í Nauthólsvík[2]

NAUTHOLSVIK,REYKJAVIK THERMAL BEACH (2715066532)

Drangsnes, aðstaða með heitum potti

Urriðavatn

Skerjafjörður, aðstaða með heitum potti

Spurningar að lokum

[breyta]
  • Hvar er hægt að stunda sjósund umhverfis Ísland?
  • Hvað ber að hafa í huga áður en fólk stingur sér til sunds í sjó?
  • Hvers vegna er mikilvægt að fara rólega út í sjóinn?
  • Hvert er hægt að hringja lendi maður í vanda?
  • Hvar er hægt að finna upplýsingar um ofkælingu?
  • Nefndu að minnsta kosti þrjú atriði sem gott er að varast að sundi loknu.

Krossapróf

[breyta]

1 Hvar er hægt að stunda sjósund umhverfis Ísland?

Í öllum stöðuvötnum
Í sundlaugum
Á ilströndum og öruggum fjörum

2 Hvað ber að hafa í huga áður en fólk stingur sér til sunds?

Að synda aldrei ein
Vera fastandi
Forðast notkun sundhetta

3 Hvað er mikilvægt að gera eftir sjósund?

Drekka mikið vatn
Borða næringarríka fæðu
Klæða sig í hlý föt
Setja upp sundhettu


Heimildir

[breyta]
  1. Steingrímsson, Guðmundur (1. maí 2018). „Hvað er svona frábært við sjósund?“. Úti . Sótt 18. mars 2022.
  2. „Ylströndin“. Nauthólsvík . Sótt 18. mars 2022.