Siglingaljós á skipum
<- Aftur í efnisyfirlit fyrir Wikibækur kennaranema |
Þessi wikisíða er um allt sem snýr að skipsstjórn.
Höfundur er Kjartan Örn Kjartansson
Siglingaljós á skipum
[breyta]Til hvers erum við með siglingaljós á skipum? Jú, siglingaljósin eru til þess að sæfarendur geti farið ferða sinna á öruggan og ábyggilegan hátt án þess að skapa eigin skipi og öðrum skipum hættu. Til dæmis á skipstjórnarmaður á skipi að víkja fyrir öðru skipi ef hann sér rautt bakborðsljós.
Sigluljós
[breyta]Sigluljósið er staðsett í möstrum skipa og skal aftara sigluljósið vera ofar en það fremra. Sigluljósið er hvítt ljós og lýsir í 225° af sjóndeildarhringnum. Eins og sjá má myndinni hér að neðan þá eru ljósin gul en í raunveruleikanum eru þau hvít. Skip sem eru styttri en 50 metrar eru með eitt sigluljós en skip sem eru lengri en 50 metrar eru með tvö sigluljós.
Skutljós
[breyta]Skutljós er eins og orðið sjálf bendir til á skut skipsins. Skutljósið er eina siglingaljósið sem sést aftan á skipinu. Skutljósið lýsir í 135° af sjóndeildarhringnum eða í 67,5° í báðar áttir frá langskurðarlínu skipsins að aftan.
Hliðarljós
[breyta]Hliðarljós á skipum eru tvö. Ljósið sem er bakborðs megin er rautt á lit en stjórnborðsljósið er grænt á lit. Bæði hliðarljósin lýsa beint fram og 22,5° aftur fyrir þvert (hvort ljós samtals 112,5°) bæði stjórn- og bakborðs megin.
Veiðiljós á fiskveiðiskipum
[breyta]Skip á öðrum veiðum en togveiðum eiga að hafa rautt 360° hringljós fyrir ofan hvítt 360° hringljós. Skip sem er á togveiðum á að hafa grænt 360° hringljós fyrir ofan hvítt 360° hringljós. Öll skip sem stunda veiðar skulu hafa uppi dagmerki að deginum. Dagmerkin eru tveir þríhyrningar sem snúa endunum saman.
Höfuðáttarbaujur
[breyta]-
Norðurbauja
-
Vesturbauja
-
Austurbauja
-
Suðurbauja
Hér á eftir fer nánari lýsing á höfuðáttarbaujm
Norðurbauja
[breyta]Norðurbaujan er ein af höfuðáttarbaujunum. Fara skal fyrir norðan norðurbaujuna.
Ljóseinkenni: blikkar stöðugt.
Austurbauja
[breyta]Austurbaujan er ein af höfuðáttarbaujunum. Fara skal fyrir austan austurbaujuna.
Ljóseinkenni: 3 stutt ljósmerki.
Suðurbauja
[breyta]Suðururbaujan er ein af höfuðáttarbaujunum. Fara skal fyrir sunnan suðurbaujuna.
Ljóseinkenni: 6 stutt og 1 langt ljósmerki.
Vesturbauja
[breyta]Vesturbauja|Vesturbaujan er ein af höfuðáttarbaujunum. Fara skal fyrir vestan vesturbaujuna.
Ljóseinkenni: 9 stutt ljósmerki.
Krossapróf:
[breyta]
Athugasemdir
[breyta]Síðan var síðast uppfærð þann 10.03.2007 af Kjartani Þessi síða er í vinnslu og verður vonandi aldrei endanlega kláruð.
(athuga, þessi wikibók hefur verið færð á þessa slóð vegna þess að líklegt er að myndum verði eytt. Það vantar höfundarréttarupplýsingar um myndir, myndirnar voru teiknaðar af Kjartani en hann gleymdi að tilgreina það þegar myndum var hlaðið inn.)--Salvör Gissurardóttir 11. nóvember 2007 kl. 18:39 (UTC)