Fara í innihald

Reisubókin vefleiðangur 5

Úr Wikibókunum

Þennan vefleiðangur útbjó Jónatan G. Jónsson í tengslum við námskeiðið nám og kennsla á netinu 2012. Verkefnið gæti hentað sem hluti af þemaverkefni í 9. eða 10. bekk grunnskóla um heimabyggð.

Kynning

[breyta]

Það á að fara í kynnisferð til Vestmannaeyja. Ýmsir undirbúningshópar hafa verið skipaðir. Þinn hópur hefur menningu og sögu Eyjanna á sinni könnu.


Verkefni

[breyta]

Þú og þeir sem eru með þér í hóp eigið að afla upplýsinga um sögu og menningu í Vestmannaeyjum og miðla henni.


Brunnar sem sækja má í

[breyta]

Hér eru tenglar á nokkrar heimasíður þar sem upplýsingar er að finna sem tengjast efninu.

http://is.wikipedia.org/wiki/Vestmannaeyjar

http://safnahus.vestmannaeyjar.is/sidur/myndir-fra-nyja-safninu

http://www.heimaslod.is/index.php/Saga

http://www.heimaslod.is/index.php/Menning

http://www.ismennt.is/vefir/eyglob/sagave/saga.html

Ferli

[breyta]

Ákveðið hefur verið að gera kynningu um Vestmannaeyjar í forritinu Comic life.

Á vefsíðunum sem eru í brunni eru ýmsar upplýsingar um Vestmannaeyjar, auk þeirra getið þið leitað á netinu og í bókum að upplýsingum sem ykkur finnst þið þurfið. Síðan getið þið teiknað myndir og skannað eða notað ljósmyndir, leikin atriði efti eigin smekk.

Texta má ekki taka beint af heimild um heldur vinna hann upp svo að hann hennti fyrir teiknimyndarformið.

Um er að gera að nota humyndaflugið til hins ýtrasta til að skapa sem flottasta teiknimynd.

Mat

[breyta]

Námsmat er byggt á sjálfsmati nemenda, jafningjamati og mati kennara á verkefninu, þegar því hefur verið skilað.



Niðurstaða

[breyta]

Markmiðið er að nemdndur kynnist menningu og sögu Vestmannaeyja, (heimabyggðar) og komi þekkingu sinni í form sem er aðgengilegt fyrir þá. Einnig er það líka markmiðið að nemendur vinna með heimildir og komi þeim frá sér í knöppu formi.