Matreiðslubók/Skinkuhorn
Útlit
Skinkuhorn eru auðveld í bakstri og henta í veislur eða sem nesti.
Efni
[breyta]- ½ lítri súrmjólk
- 30 g sykur
- 1 msk ger
- 50 g smjörlíki
- 1–2 tsk salt
- 900 g hveiti
- 1 askja skinkumyrja
Aðferð
[breyta]Súrmjólk er hituð lítillega (ekki mikið upp fyrir 37°C því þá skemmist gerið) og sykur settur í út í mjólkina. Geri hrært við blönduna og hún látin standa í nokkrar mínútur áður en þurrefninu er hnoðað saman við. Skiljið smá hveiti eftir fyrir næstu hnoðun. Látið hefast í hálftíma. Hnoðið aftur og notið þá restina af hveitinu og skiptið deiginu í fjóra hluta. Hver hluti flattur út í hring og skorinn í 8 geira. Setjið skinkumyrju á breiða enda hvers geira og rúllið upp. Látið hefast aftur í 20 mínútur. Penslið með t.d. eggi og mjólk.
Bakað við 200°C í miðjum ofni í 7 til 9 mínútur.