Matreiðslubók/Ostasalat
Útlit
Ostasalat er gott með grófu brauði. Það er auðvelt í matreiðslu.
Innihald
[breyta]- 1 rauð og 1 græn paprika, saxaðar
- ½ púrrulaukur, fínt skorinn
- 1 mexíkóostur í bitum
- 1 hvítlauksostur í bitum
- Vínber að vild, bæði græn og blá, skorin í 4 parta
- ½ dós af ananaskurli, án safa
- 1 dós sýrður rjómi
- 1 lítil dós majónes
Öllu er blandað saman í skál og kælt. Það er gott að bera það fram með grófu brauði, ýmist nýju eða ristuðu.