Matreiðslubók/Marengsbomba
Útlit
Marengsbomba er tilvalið bakkelsi í öllum veislum, t.d. barnaafmælum.
Innihald
[breyta]Marengsbotn
- 3 eggjahvítur
- 150 g flórsykur
Svampbotn
- 2 egg
- 70 g sykur
- 30 g hveiti
- 30 g kartöflumjöl
- 1 tsk lyftiduft
Krem
- 3 eggjarauður
- 3 msk flórsykur
- 50 g smjörlíki
- 100 g súkkulaði
Fylling
- ½ lítri rjómi
- 1 askja jarðaber
- 1 askja bláber
- 2–3 Marssúkkulaði
Aðferð
[breyta]Botn
- Þeytið egg og sykur mjög vel saman.
- Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og blandið varlega saman við eggin með sleif.
- Setjið bökunarpappír í botninn á 22 cm hringlaga móti. Bakið kökuna í mótinu, neðarlega í 175°C heitum ofni í 12 mínútur.
Marengs
- Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smám saman út í, þeytið mjög vel.
- Teiknið 22 cm hring á bökunarpappír. Smyrjið marengsinum þar á og bakið í 100°C heitum ofni í tvær klukkustundir.
Krem
- Þeytið saman eggjarauður og flórsykur.
- Bræðið súkkulaðið og smjörlíkið saman við mjög vægan hita, látið hitann rjúka úr og hrærið saman við eggjarauðurnar.
Samsetning
Þeytið rjómann. Setjið tertuna saman þannig: Fyrst svampbotn, þá rjóma, svo ávexti og brytjað Marssúkkulaði, afganginn af rjómanum, marengs, og loks krem ofan á marengsinn. Látið tertuna standa í ísskáp í 6–8 klukkutíma áður en hún er borin fram. Skreytið hana með jarðarberjum.