Fara í innihald

Matreiðslubók/Kartöflu og spínat ofnréttur

Úr Wikibókunum

Kartöflu og spínat ofnréttur fyrir 4-6

[breyta]
  • 900 g bökunarkartöflur
  • 300 g ferskt spínat
  • 3 dl Ab mjólk eða lítil dolla kotasæla
  • 1 dl sýrður rjómi.
  • 1 dl rjómaostur með kryddblöndu
  • 2 egg
  • 1 msk gróft sinnep
  • 50 g kryddjurtir, t.d. steinselja, oregano og graslaukur
  • 1-2 tómatar
  • Salt og pipar.

Aðferð

  • Skrælið kartöflurnar og forsjóðið í um 10 mín, kælið lítillega og skerið mjög þunnar sneiðar.
  • Saxið kryddjurtirnar og spínatið fínt niður.
  • Hrærið saman Ab mjólkinni, rjómaostinum, sýrða rjómanum, sinnepinu og eggjunum.
  • Blandið kryddjurtum og spínatinu saman við.
  • Smyrjið eldfast mót eða bökunarform. Raðið hluta af kartöflusneiðunum í botninn á forminu og setjið til skiptis kartöflur og rjómaostblönduna í formið.
  • Kryddið yfir hvert lag af kartöflum með salti og pipar. Endið á spínatblöndunni og raðið þar ofan á tómatsneiðum
  • Bakið í 180° C heitum ofni í 40 mínútur

Fann þessa uppskrift á netinu fyrir nokkru en finn ekki aftur slóðina þangað