Matreiðslubók/Heitur svepparéttur
Útlit
Uppskrift handa 6-8 sem meðlæti
- 1 stór dós kotasæla
- 1 gráðostur
- 1 dós sýrður rjómi
- 1 dós kryddaðu rjómaostur (má sleppa)
Blanda saman og látið standa í einhvern tíma
- 1 bakki sveppir skornir gróft og settir örstutt á pönnu í olíu
- 1 rauðlaukur skorinn smátt
- 6-8 brauðsneiðar ristaðar og skornar í teninga
Þetta er sett í ofnfast mót og sósunni helt yfir og blandað vel saman
Hitað í ofni við 200 gráður í 20-30 min, best að borða heitt