Heit íssósa er góð út á ís eða aðra eftirrétti.
- 4 stykki Snickers eða Mars
- 50 g suðusúkkulaði (má sleppa)
- 250 ml rjómi
Allt sett í pott og látið malla við mjög vægan hita í um 20 mín., eða þar til sósan er orðin þykk. Borin fram heit eða volg með ís.