Fara í innihald

Matreiðslubók/Grænmetissúpa

Úr Wikibókunum

Grænmetissúpa

[breyta]

Olía til steikingar

Rauðlaukur

2-3 hvítlauksrif

Grænmeti, nota það sem til er eða jafnvel frosna blöndu af brokkolí, blómkáli og gulrótum

2 grænmetistengingar

1 dós Hunts tómatmauk með lauk og hvítlauk

400 ml vatn

200 ml mjólk/rjómi

200 gr. hreinn rjómaostur

Salt og pipar

Laukur og grænmeti mýkt í olíunni. Öllu bætt út í nema mjólk/rjóma og rjómaosti. Látið malla í 20 mínútur eftir að suðan hefur komið upp. Mjólk/rjóma og rjómaosti bætt út í, kryddað eftir smekk. Þeir sem eiga matvonda krakka þá er mjög gott að mauka grænmetið í súpunni t.d. með töfrasprota eða hella henni í mixer - þá verður hún frekar þykk en afar bragðgóð - búið að slá í gegn á mínu heimili :-)