Fara í innihald

Matreiðslubók/Grænmetiskúskús með karrý

Úr Wikibókunum

Grænmetis kúskús með karrí

[breyta]

2 tsk ólífuolía

1 rauðlaukur

2 gulrætur

2 hvítlauksrif

2 tsk karríduft

½ tsk kummin

4 dl kjúklingakraftur (hef nú alltaf bara sett súputening)

1 dós kúklingabaunir

½ dl rúsínur

2 msk mangó chutney

1 msk hvítvínsedik

2 tsk engifer, rifið

salt

2 dl kúskús

3 msk steinselja


  1. Hitið olíu í stórum potti. Skerið rauðlauk smátt, gulrætur í þunnar sneiðar og setjið út í pottinn. Látið krauma þar til laukurinn mýkist eða í um 5 mín. Merjið hvítlauk og bætið út í ásamt karríi og kummin og látið malla í um 1 mín.
  2. Rífið engifer, hellið safa af kjúklingabaununum og skolið. Bætið út í pottinn ásamt kraftinum, rúsínunum, mangó chutney, ediki og salti og látið suðuna koma upp. Takið pottinn af hitanum.
  3. Blandið kúskús út í. Setjið lok á pottinn og látið standa þar til kúskúsið er orðið mjúkt og tilbúið, eða í 5 mín. Saxið steinselju smátt (eða kaupið í kryddstauk) og hrærið saman við. Volla..tilbúið.