Matreiðslubók/Frönsk súkkulaðikaka
Útlit
Frönsk súkkulaðikaka er mjög góð, mjög fljótlega bökuð og afar súkkulaðirík kaka.
Innihald
[breyta]- 200 g smjör
- 200 g suðusúkkulaði
- 4 egg
- 1,5 dl hveiti
- 100 g heslihnetur (vel saxaðar)
Aðferð
[breyta]- Heslihnetur saxaðar (ef þær voru ekki keyptar saxaðar).
- Súkkulaði og smjör brætt yfir vatnsbaði.
- Egg og sykur þeytt vel saman, eða þar til blandan verður hálfseig.
- Þegar súkkulaðið hefur kólnað aðeins er því hrært saman við eggjablönduna.
- Öll blandan látin í smurt og hveitistráð smelluform og bakað í miðjum ofni við 180°C í um það bil 35 mínútur.
- Kakan látin kólna aðeins í forminu áður en hún er tekin úr og færð á disk.
- Áður en kakan er borin fram er flórsykri stráð yfir hana, til að láta hana líta betur út.
Ábendingar
[breyta]- Til að vita hvort kakan sé búin að bakast nóg getur verið gott að stinga pinna í hana miðja. Hann ætti þá að koma út að mestu leyti hreinn, en þó með örlitlu klesstu kökudeigi við, því kakan á að vera klesst og hálfrök í miðjunni.
- Best er að kaupa hneturnar forsaxaðar, þar sem það getur verið langt og leiðingjarnt verk að saxa þær niður.
- Ef einhver er með hnetuofnæmi, nú eða finnst hnetur alls ekkert góðar, er vel hægt að sleppa hnetunum, kakan er góð engu að síður.