Matreiðslubók/Fiskisúpa
Útlit
Matreiðslubók/Fiskisúpa
[breyta]Fiskisúpa sem er holl og góð og fljótleg.
Innihald:
- 600 - 800 gr. ýsa
- 7 dl. mysa
- 5 dl. vatn
- ½ - 1 tsk. salt
- 100 gr. sellerí
- 100 gr. blaðlaukur
- 4 gulrætur
- 1 laukur
- 70 gr. smjör
- 1 tsk. karrí
- 2 msk. hveiti
- Smávegis af Season all
- 1 - 1 ½ tsk. fiskikraftur
- 1 peli rjómi
- 3 eggjarauður
- 200 gr. rækjur
Gott að bera fram með volgu smábrauði og smjöri.
Aðferð:
Fiskurinn soðinn í blöndu af mysu, vatni og salti (ath. að ofsjóða ekki). Sellerí og laukur saxað og blaðlaukurinn skorinn í þunnar sneiðar. Grænmetið látið krauma í smjörinu í u.þ.b. 5 mín. í potti. Karríi bætt í. Skera gulræturnar í þunnar sneiðar og snöggsjóða þær. Láta hveitið yfir grænmetið í pottinum og væta í með 1 lítra af fiskisoði.
Bragðbæta með fiskikrafti og Season all, rjóminn látinn útí og hitað að suðu. Eggjarauðurnar hrærðar í skál og súpunni jafnað út í. Látið aftur í pottinn og rækjurnar, gulræturnar og beinlausi fiskurinn settur í. Nú má alls ekki sjóða í pottinum.