Fara í innihald

Matreiðslubók/Eplakaka

Úr Wikibókunum

Eplakaka er hversdagsleg og með kaffinu.

  • 150 g smjör
  • 150 g sykur
  • 150 g hveiti
  • 3-5 epli

Aðferð

[breyta]

Eplin eru skorin smátt og sett í eldfast mót. Hægt er að strá kanilsykri yfir. Smjör, sykur og hveiti er hrært og hnoðað saman og sett yfir eplin. Bakað við 175°C í 20-30 mín.

Kakan er best volg með þeyttum rjóma eða vanilluís.