Hjálp:MediaWiki HTML
Útlit
MediaWiki HTML er ívafsmál hannað af W3C sem nota má á MediaWiki við gerð á sniðum og einnig við almenna útlitshönnun. Það er í raun blanda af HTML-útgáfum og þar kemur XHTML einnig við sögu. Ekki er mælt með notkun þess í stað Wiki-málsins en stundum er óhjákvæmilegt að nota það. Með HTML má einnig nota CSS og þá líka í gegn um fyrirfram skilgreinda klasa. MediaWiki HTML er að mestu eins og W3C HTML.
Virkar HTML-skipanir
[breyta]Virkni
[breyta]bold & strong
[breyta]„<b>“ og „<strong>“ er notað til að feitletra texta. <b> er fjölnotaðri skipun en <strong> og þess vegna ákjósanlegri. Einnig er hægt að nota wiki-skipunina (''') fyrir sömu áhrif og mælir w:Wikimedia Foundation með því.
- Inntak: Maður er <b>spendýr</b>.
- Úttak: Maður er spendýr.