Fara í innihald

Handverkfæri í áfanganum Trésmíði 109/Áfangalýsing

Úr Wikibókunum

TRÉ 109 Trésmíði

[breyta]

Undanfari: GBM (Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina)

Áfangalýsing Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun handverkfæra og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningar, límingar, pússning og yfirborðsmeðferð. Haldið er áfram umfjöllun um efnisfræði tréiðna þar sem ítarlegar er farið í ýmsa eðliseiginleika viðar, flokkun, merkingar og þurrkun. Nemendur kynnast notkun algengra tegunda viðarlíms og yfirborðsefna og tekið er fyrir val og umhirða á verkfærum s.s. stillingar, brýnsla, vinnubrögð og öryggisþættir. Nemendur læra að nota hefilbekki og stilla með áherslu á góða vinnuaðstöðu við mismunandi verk. Kennslan byggist að hluta á fyrirlestrum þar sem kennari útskýrir grunnatriði fyrir nemendum en stærsti hlutinn eru fjölbreytileg smíðaverkefni sem byggjast á markmiðum áfangans. Áfanginn er bæði ætlaður húsasmiðum og húsgagnasmiðum.

Áfangamarkmið

Nemandi

  • kunni skil á algengasta smíðavið og smíðisfestingum
  • þekki helstu eðliseiginleika viðar og þurrkun timburs
  • geti valið smíðavið fyrir einstök verkefni og rökstutt valið
  • þekki flokkun og merkingar timburs eftir styrk og útliti
  • geti flokkað timbur með hliðsjón af leiðbeiningum
  • kunni skil á smíðisfestingum sem notaðar eru í trésmíði
  • geti notað algengustu hand- og rafmagnshandverkfæri
  • þekki meðferð, notkunarsvið og virkni einstakra handverkfæra
  • viti deili á uppbyggingu og notkun helstu rafmagnshandverkfæra
  • þekki og geti notað áhöld til mælinga og uppmerkinga
  • þekki mismunandi gerðir hverfisteina, smergela og brýna
  • geti lagt á og brýnt algengustu handverkfæri
  • þekki öryggisreglur einstakra hand- og rafmagnshandverkfæra
  • þekki helstu trésamsetningar og geti notað þær við einfalda trésmíði
  • kunni skil á einstökum samsetningum og notkunarsviði þeirra
  • þekki þvingur og vinnuaðferðir við samsetningar í trésmíði
  • þekki algengustu gerðir og notkunarsvið viðarlíms
  • kunni skil á nöglum og skrúfum og notkun þeirra í trésmíði
  • þekki öryggisreglur fyrir meðferð og notkun einstakra límtegunda
  • þekki grunnatriði í yfirborðsmeðferð smíðaviðar og plötuefnis
  • geti undirbúið verk fyrir yfirborðsmeðferð með pússningu eða slípun
  • þekki helstu yfirborðsefni á tré og notkunarsvið þeirra
  • geti borið yfirborðsefni á tré með mismunandi hætti
  • þekki öryggisreglur og öryggisráðstafanir við yfirborðsmeðferð
  • geti smíðað einfalda nytjahluti eftir teikningum og verklýsingum
  • þekki til vinnuskipulags í trésmíði og geti fylgt aðgerðalista við vinnu
  • geti efnað niður og unnið tré í höndum fyrir endanlega samsetningu
  • geti gengið úr skugga um gæði smíðishluta fyrir samsetningu
  • geti notað þvingur markvisst til að fá smíðishlut réttan í límingu
  • geti mælt og tekið úr fyrir smíðisfestingum og sett endanlega upp


Efnisatriði/kjarnahugtök

Handverkfæri, rafmagnshandverkfæri, val og umhirða á verkfærum, stillingar, brýnsla, vinnubrögð, öryggismál, hefilbekkur, borvél, borun, handfræsari, fræsing, handpússvél, trésamsetningar, geirnegling, blindtappi, blöðun, díll, dílun, fals, fingrun, fjöður, geirungssamsetning, grunntappi, hálft-í-hálft, hnakki, hornasamsetning, málvik, negling, nót, raufarstykki, skrúfun, sporun, töppun, límingar, pússning, slípun, efnisval, efnisfræði, viðarfræði, eðliseiginleikar viðar, viðarflokkun, styrkflokkun, útlitsflokkun, ÍST DS 413, ÍST INSTA 142, ÍST EN 519, viðarmerkingar, tréþurrkun, viðarlím, yfirborðsefni, yfirborðsmeðferð.

Námsmat

Mælt er með því að námsmat byggist á verkefnavinnu (u.þ.b. 80%) og einu eða fleiri skriflegum prófum (20%).

Heimild:

[breyta]

Menntamálaráðuneytið. 2003. Námskrá í grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina : sérnám í húsasmíði, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulögnum og veggfóðrun/dúkalögn.Reykjavík. Vefslóð sótt 10. apríl 2007: Menntamálaráðuneytið| [1]

Handverkfæri í áfanganum TRÉ 109