Matreiðslubók/Speltbrauð
Útlit
Speltbrauð
Efni
[breyta]- 5 dl spelt
- 1 dl sólblómafræ, sesamfræ eða kókosmjöl
- 3 tsk. vínsteinslyftiduft
- ½ -1 tsk. sjávarsalt
- 1½ - 2 dl. AB-mjólk eða mjólk
- 1½ - 2 dl. sjóðandi heitt vatn
Aðferð
[breyta]- Blandið þurrefnum saman í skál.
- Hellið vökvanum út í og blandið varlega saman.
- Á þessu stigi er hægt að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið, t.d. sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir.
- Setjið deigið í smurt brauðform og bakið í 25-30 mín við 200C.