Mannslíkaminn
Inngangur
[breyta]Hér geti þið skoðað og lært um mannslíkamann! Þessi wikibók fjallar um mannslíkamann og er hugsað sem námsefni fyrir yngsta stig grunnskólans. Markmiðið er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á mannslíkamanum og geti sagt frá helstu líffærum og frumum. Á þessari síðu eru þið að þið kynnist mannslíkamanum og hvernig hann starfar. Það er mikilvægt að vita af hverju og hvernig líffærin okkar og frumurnar starfa. Það er starfsemi líkamans sem heldur okkur gangandi, án hans værum við ekki hér 😊
Mannslíkaminn
[breyta]Meginuppistaða líkamans eru fjögur frumefni. Fyrst má nefna súrefni (O), næst kolefni (C), vetni (H) og fjórða frumefnið er svo nitur 👎.
Frumur
[breyta]Líkaminn okkar er búinn til úr mörgum frumum. Frumurnar vinna saman sem ein heild. Þær raðast saman eins og púsluspil. Frumur eru ólíka, sumar eru eins og langir þræðir, aðrar eins og litlir kubbar og enn aðrar eins og kleinuhringir eða dropaklessur.
Til þess að frumurnar okkar geta starfað verða þær að fá súrefni og næringu. Þegar við öndum, borðum og drekkum erum við að næra frumurnar. Þær eru agnarsmáar og sjást ekki nema í smásjá.
Taugarfrumurnar okkar í líkanum eru eins og símalínur. Þær senda skilaboð fram og til baka í líkamanum.
Beinagrindin
[breyta]Þegar við stækkum þá eru frumurnar að skipta sér og verða fleiri. Þannig vaxa beinin, vöðvarnir og húðin okkar. Inni í líkamanum okkar er beinagrind. Hennar hlutverk er að halda okkur uppi. Beinagrindin okkar ver líka mörg líffæri fyrir hnjaski sem við getum orðið fyrir. Beinagrindin okkar er samansett úr 206 beinum. Á milli flestra beina eru liðamót sem gera okkur kleift að hreyfa okkur. Höfuðkúpan okkar verndar heilann og virkar eins og hjálmur.
Vöðvar
[breyta]Vöðvar eru utan á beinunum okkar. Þeirra hlutverk er að hreyfa líkamann. Vöðvar eru allskonar, þeir geta verið litlir og stórir. Við getum ekki stjórnar öllum vöðvunum okkar þó við stjórnum einhverjum þeirra. T.d. eru vöðvar í maganum sem við höfum ekki stjórn á. Stærsti vöðvinn okkar er rassvöðvinn.
Við notum 17 vöðva til að brosa. Við notum 43 vöðva þegar við förum í fýlu. Þegar við brosum eða sýnum önnur svipbrigði notum við litla vöðva. Þegar við hreyfum t.d. hendur eða fætur þá notum við stóra vöðva.
Hjartað okkar er vöðvi. Ef við setjum hendina á brjóstkassann getum við fundið hjartað slá. Þegar það slær þá er það að dæla blóði um líkamann. Það tekur 16 sekúndur fyrir hjartað að dæla blóði til fótanna og tilbaka. Hjartað slær um 70 slög á mínútu. Þegar við reynum á líkamann eins og t.d. að hlaupa þá slær hjartað hraðar því þá erum við að nota meiri orku.
Blóð í líkamanum
[breyta]Blóðið er vökvi sem flytur næringu um líkamann eins og járnbrautarlest sem brunar áfram. Í blóðinu okkar eru rauð og hvít blóðkorn. Rauðu blóðkornin flytja súrefni um líkamann. Hvítu blóðkornin gleypa bakteríur og verja okkur fyrir sjúkdómum eins og vel þjálfaður varðhundur.
Youtube myndbönd
[breyta]'Gagnlegir tenglar á Youtube um mannslíkamann fyrir yngsta stig grunnskólans á ensku'
https://www.youtube.com/watch?v=zKSqNLT8kAA - Hér er fjallað um stærstu líffærin okkar og hvernig þau starfa
https://www.youtube.com/watch?v=AHQGNb0zBgg - Hér er fjallað um mannslíkamann á vísindalegan hátt
https://www.youtube.com/watch?v=1LEdwewVZnY - Hér er skemmtilegt lag um hvernig höfuðkúban og beinin okkar virkar
https://www.youtube.com/watch?v=3Zp6qPIJsAo - Hér er skemmtilegt og fróðlegt lag um mannslíkamann
https://www.youtube.com/watch?v=i5aXwiC3wWc - Hér er farið nánar í starfsemi, heiti á líffærunum okkar og frumu starfsemi
https://www.youtube.com/watch?v=rg34VwymLXc - Meiri fróðleikur um mannslíkhaman og hvernig hann starfar
https://www.youtube.com/watch?v=24IYt5Z3eC4 - Hér er fjallað um ofnæmiskerfið okkar og hvernig það starfar
Spurningar
[breyta]- Hvaða fjögur frumefni er meginuppistaða líkamans?
- Hvað einkennir frumur líkamans?
- Hvað er beinagrindin samsett úr mörgum beinum?
- Hversu hátt hlutfall líkamans er vatn?
- Hvert er hlutverk vöðvanna?
Krossapróf
[breyta]